Lítil göngustýrð skúringar- og þurrkvél, fullkomin til að þrífa hratt á þröngum svæðum og þar sem erfitt er að komast að.
Hönnuð til að vera einföld í notkun fyrir alla. E36-vélin er með þéttum ytri málum, skýrum og auðskiljanlegum stjórntækjum og skilar mjög góðum afköstum.
Til að tryggja vönduð þrif bíður hún upp á bestu hreinsilausnar í sínum flokki.
Hægt er að fella hana saman, sem auðveldar bæði flutning og geymslu.
Fagleg og nett
E36-vélin sameinar afköst fyrsta flokks atvinnuskúringar- og þurrkvélar, jafnvel á þröngum og erfiðum svæðum, í hornum og mjóum göngum.
Hún er sterkbyggð og öflug, afar örugg í notkun og mjög auðveld að stjórna – og ekki síður einföld í flutningi.
